|
Article on other languages:
|
Upplýsingar eru afrakstur söfnunar, útfærslu, breytinga og skipulags gagna þannig að þau hafi áhrif á þekkingu einhvers viðtakanda. Upplýsingar eru þannig stundum sagðar vera sú merking sem maðurinn gefur gögnum og hafa með það að gera í hvaða samhengi gögnin koma fyrir, hvernig þau eru táknuð með skiljanlegum hætti, og hver merking þeirra er í huga viðtakandans. Upplýsingar eru eiginleikar boða í samskiptum. Í upplýsingafræði eru upplýsingar skilgreindar sem staða kerfis. Magn upplýsinga sem staðan felur í sér fer eftir því hversu margar aðrar stöður kerfisins eru mögulegar. Aðferð upplýsingafræðinnar til að mæla magn upplýsinga í skilaboðum var sett fram í ritgerð Claude Shannon, „A Mathematical Theory of Communication“. |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.