Teiknimyndasaga

Article on other languages:

Síða úr teiknimyndasögunni Nemó litli frá 1908.

Teiknimyndasögur eru listform sem felst í því að listamaðurinn segir sögu í myndum sem raðað er upp í ákveðna röð. Sögurnar geta verið annað hvort með texta eða án en algengast er að einhver texti fylgi. Algengt er að stuttar teiknimyndasögur (1-5 rammar) birtist í dagblöðum en lengri teiknimyndasögur eru gjarnan gefnar út í blöðum og jafnvel í stærri brotum sem er þá kallað „graphic novels“ á ensku. Teiknimyndasögur eru kallaðar comics á ensku, manga á japönsku og bande dessinée eða B.D. á frönsku. Í Bretlandi er gjarnan talað um comics sem innlendar teiknimyndasögur en comic books sem teiknimyndasögur frá Bandaríkjunum.

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.