Article on other languages:
Skotland (gelíska: Alba) er land í vestur Evrópu og næststærsti hluti Bretlands (hinir hlutarnir eru England, Wales og Norður-Írland). Það hefur eigið þing og heimastjórn frá árinu 1999. Í fornu máli íslensku var Skotland nefnt Írland hið minna.
Skotland var sjálfstætt konungsríki þar til það gekk í konungssamband við England og Írland þegar Jakob VI Skotakonungur tók við af Elísabetu I árið 1603. Skoska þingið var lagt niður 26. mars 1707 og Skotland var formlega sameinað Bretlandi með bresku sambandslögunum 1. maí sama ár þegar Breska konungdæmið var stofnað með eitt þing í Westminster í London. Skoska þingið var svo endurreist í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1999. Það hefur þó ekki völd í utanríkismálum.
Íþróttin golf er upprunnin í Skotlandi.
Undir yfirráðum annarra ríkja: Álandseyjar · Færeyjar · Gíbraltar · Guernsey · Jersey · Mön · Svalbarði
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.