|
Article on other languages:
|
OpenOffice.org er skrifstofuhugbúnaður sem byggir á StarOffice. Forritið er frjálst og hægt er að sækja það á internetinu án greiðslu. OpenOffice.org er til á mörgum tungumálum og fyrir ýmis stýrikerfi eins og Microsoft Windows, BSD, Unix, GNU/Linux og Mac OS X. OpenOffice.org getur lesið og skrifað fjölda skjalasniða, þar á meðal þau snið sem Microsoft Office notar (að megninu til). Grunnurinn að OpenOffice.org kom upphaflega frá þýska fyrirtækinu StarDivision sem var stofnað á 9. áratugnum. Aðalvara þeirra var skrifstofuhugbúnaðurinn StarOffice. Árið 1999 keypti Sun Microsystems fyrirtækið og ári síðar gáfu þeir út hluta frumkóðans undir nafninu OpenOffice.org með tvenns konar notendaleyfi; LGPL (GNU Lesser General Public License) og SISSL (Sun Industry Standard Source License). StarOffice var áfram þróað samhliða sem hefðbundinn leyfisskyldur hugbúnaður. Hugbúnaðurinn inniheldur nokkur þétt samhæfð forrit; meðal annars ritvinnslu, töflureikni, teikniforrit, glæruforrit, gagnagrunnsviðmót og fleira. Eigið skjalasnið OpenOffice.org var upphaflega það sama og hjá StarOffice (.sd*) sem var í grundvallaratriðum XML-snið þjappað með Java Archive þjöppunarhugbúnaðinum. Síðar var þetta snið þróað áfram og kallað OpenOffice-snið (.sx*). Frá útgáfu 2.0.3 hefur OpenOffice.org notað alþjóðlega skjalastaðalinn Open Document Format (.od*) sem eigið skjalasnið. Tenglar
More about OpenOffice.org: 2 firefox in one openoffice.org sams sams teach teach thunderbird window yourself yourself, click openoffice.org point, dummy openoffice.org, openoffice.org writer, 2.0 conceptual edition guide openoffice.org standard, learn macro openoffice.org programming spreadsheet, openoffice.org 1.0 resource kit, openoffice.org practical, mailto openoffice.org, |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.