Landafræði

Article on other languages:

Landafræðikort af jörðinni.

Landfræði eða landafræði er yfirgrein jarðvísindanna sem fæst við rannsóknir á skipulagi riðmum og formum í og á jörðinni. Þeir sem leggja stund á greinina nefnast landfræðingar.

Landfræði fjallar um sambúð manns og náttúru, sem og ýmsar aðrar hliðar mannlegs samfélags.Náttúrulandfræði fæst við hina ytri ásýnd landsins: Landmótun, jarðveg, gróður, veðurfar og fl. Mannvistarlandfræði fæst við búsetu mannsins á jörðinni og einnig við efnahags- hag- og félagslega þróun staða og svæða. Kortlagning og greining lands og landupplýsinga hefur alltaf skipað veglegan sess í greininni og eru tölvuvædd landupplýsingakerfi, byggð á sérstökum aðferðum landfræðinga, orðin mikilvæg á mörgum sviðum þjóðfélagsins.

Landfræði skiptist fyrst í tvær deildir, annars vegar mannvistarlandfræði og hins vegar náttúrulandfræði.

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.