|
Article on other languages:
|
Þetta er listi yfir lönd heimsins eftir stjórnarfari.
ForsetaræðiÍ þessum löndum er forsetinn er höfuð framkvæmdavaldsins og sjálfstæður gagnvart löggjafarvaldinu. Listinn telur bæði lýðræðisríki og ólýðræðisleg ríki. ÞingræðiÞetta eru lönd þar sem forsætisráðherra er höfuð framkvæmdavaldsins og líka leiðtogi löggjafarvaldsins. Í þessum löndum er gjarnan líka forseti sem hefur táknrænt hlutverk sem þjóðhöfðingi. Þingbundin konungsstjórnÞetta eru lönd þar sem forsætisráðherra er höfuð framkvæmdavaldsins og leiðtogi löggjafarvaldsins. Þjóðhöfðingi er þingbundinn konungur eða fursti sem einungis beitir táknrænu valdi sínu með samþykki ríkisstjórnarinnar.
Hálf-þingbundin konungsstjórnÞetta eru lönd þar sem forsætisráðherra er höfuð framkvæmdavaldsins, en konungurinn/furstinn hefur töluverð pólitísk völd sem hann/hún getur beitt að eigin frumkvæði. Lönd í Breska samveldinuÞetta eru lönd með þingbundna konungsstjórn þar sem Elísabetu II Bretadrottning er þjóðhöfðingi yfir sjálfstæðri ríkisstjórn. Drottningin tilnefnir táknrænt landstjóra sem kemur fram fyrir hennar hönd. Forsætisráðherra er höfuð framkvæmdavaldsins og einnig leiðtogi löggjafarvaldsins.
EinveldiÍ þessum löndum er konungurinn/furstinn höfuð framkvæmdavaldsins og fer með öll völd. KlerkastjórnÍ þessum ríkjum byggir stjórnarfar á ríkistrú og þjóðhöfðinginn er kosinn af einhvers konar trúarlegu æðstaráði. FlokksræðiÞetta eru lönd þar sem öll pólitísk völd liggja hjá einum stjórnmálaflokki og starfsemi þess flokks blandast meira eða minna saman við starfsemi ríkisins. HerforingjastjórnHer landsins fer með stjórn þess og framkvæmdavald er í höndum herráðs eða herforingjaklíku. MillibilsástandLönd þar sem breytingar á stjórnarfari standa yfir og ekki er hægt að skilgreina að svo stöddu. Innra stjórnkerfiSambandsríkiÞetta eru lönd þar sem alríkisstjórn deilir valdi með hálf-sjálfstæðum fylkisstjórnum.
Óskipt ríkiRíki þar sem miðstjórnin deilir hluta af valdi sínu með héraðsstjórnum.
Hálfgerð sambandsríki |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.