|
Article on other languages:
|
Mynd tekin innan í einu af kvikmyndahúsum Hoyts-keðjunnar í Ástralíu og sýnir hljóðdræg veggtjöld, hátalara á hliðarvegg og glasahaldara á sætum.
Kvikmyndahús er bygging þar sem fram fer sýning kvikmynda sem varpað er á sýningartjald í sýningarsal. Kvikmyndahús á ÍslandiFyrsta kvikmyndasýning sem fór fram á Íslandi var í Góðtemplarahúsinu á Akureyri 27. júní 1903 en fyrsta eiginlega kvikmyndahúsið sem sýndi reglulega kvikmyndir um lengri tíma var Fjalakötturinn í Aðalstræti þar sem Reykjavíkur Biograftheater (síðar Gamla bíó) hóf sýningar 2. nóvember 1906 og sýndi þar til ársins 1927 þegar það flutti í nýtt húsnæði við Ingólfsstræti þar sem Íslenska óperan er núna til húsa. Nýja bíó var stofnað 1912 og sýndi í sal hjá Hótel Íslandi til 1920 þegar það flutti í nýtt húsnæði við Austurstræti. Fyrsta fjölsala kvikmyndahúsið á Íslandi var Regnboginn sem opnaði 1980.
Tengt efniHeimildir |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.