Júgóslavía var land á Balkanskaga í Suðaustur-Evrópu mestalla 20. öldina. Nafnið þýðir „land suður-slavanna“. Í raun var um að ræða þrjú aðskilin ríki sem komu hvert á eftir öðru.
Sambandsríkin tvö sem eftir stóðu, Serbía og Svartfjallaland, stofnuðu þá hið svokallaða Sambandslýðveldi Júgóslavíu. Árið 2001 var samþykkt að hætta að nota Júgóslavíunafnið og tók sú breyting gildi 4. febrúar2003. Arftaki sambandslýðveldisins er hið laustengda bandalag Serbía og Svartfjallaland.