|
Fornleifar eru leifar fornra mannvirkja og annarra staðbundinna minja, 100 ára eða eldri, sem menn hafa gert eða mannaverk eru á. Fornleifar geta verið byggðaleifar, bæjarstæði, húsaleifar hvers kyns, svo sem kirkna, bænahúsa, klaustra og búða, leifar af verbúðum, naustum, verslunarstöðum og byggðaleifar í hellum; einnig vinnustaðir þar sem aflað var fanga, sel, verstöðvar, ból, mógrafir, kolagrafir, gömul tún- og akurgerði, áveitumannvirki og leifar eftir veiðar til sjávar og sveita, gamlir vegir, stíflur, brýr, vöð, varir, hafnir og bátalægi, slippir, ferjustaðir, kláfar, vörður og vitar og önnur vega- og siglingamerki ásamt kennileitum þeirra; varnarmannvirki; þingstaðir, hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð; áletranir, greftrunarstaðir og skipsflök. Fornleifar eru ekki aðeins öll forn mannvirki heldur einnig staðir sem á einn eða annan hátt tengjast menningu og atvinnuvegum. Heimild |
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.