Hitler fæddist í Braunau í Austurríki-Ungverjalandi, nálægt þýsku landamærunum. Hann var fjórði í röð sex barna Alois Hitler og konu hans, Klöru. Sem ungur maður reyndi Hitler að komast inn í listaháskólann í Vín, en var hafnað. Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út gerðist hann sjálfboðaliði í bæverska hernum og barðist á vesturvígstöðvunum fyrir þjóðverja nær allt stríðið, þar til hann særðist þann 15. október 1918 eftir gasárás og var fluttur á herspítala. Eftir ósigur Þjóðverja settist Hitler að í München í Bæjaralandi og gekk 1919 í stjórnmálaflokk sem seinna var kallaður Nasistaflokkurinn. Hitler varð formaður þess flokks 1921 og leiddi flokkinn til æviloka. Hitler komst til valda árið 1933 en þá var hann útnefndur kanslari Þýskalands af Hindenburg, forseta Þýskalands. Eftir fráfall Hindenburgs árið eftir tók Hitler sér titil kanslara og foringja og var í reynd orðinn einræðisherra í Þýskalandi. Á valdatíma sínum leiddi Hitler Þýskaland út í stríð við flesta nágranna sína. Með innrás Þjóðverja í Pólland1939 hófst seinni heimsstyrjöldin sem lauk með algerum ósigri Þjóðverja sex árum síðar. Á lokadögum stríðsins, þegar rauði herinn hafði nánast alla Berlín á sínu valdi, framdi Hitler sjálfsmorð í neðanjarðarbyrgi í Berlín sem hann hafði hafst við í frá upphafi árs 1945.
Tenglar
Wikivitnun hefur upp á að bjóða safn tilvitnana á síðunni:
More about Adolf_Hitler: picture of adolf hitler, adolf hitler mein kampf, adolf hitler speech, adolf hitler quote, history of adolf hitler, life and death of adolf hitler, adolf hitler time line, adolf hitler hitler knew life private who woman, adolf hitler photo,