|
Írska (Gaeilge) er keltneskt tungumál sem enn er talað víða á Írlandi, sérstaklega á svokölluðum Gaeltácht-svæðum, sem flest eru á vesturströnd Írlands, sérstaklega í nágrenni Galway. Margir Írar sem hafa áhuga á tungu sinni og menningu reyna að halda henni lifandi, en enn sem komið er hafa tilraunir þessar borið takmarkaðan árangur. Skilti á Írlandi eru bæði á ensku og á írsku. Írska er eitt af 23 formlegum tungmálum Evrópusambandsins.
|